03/05/2024

Skíðafélagsmót á sunnudegi

640-skidi3

Skíðafélagsmót Skíðafélags Strandamanna með hefðbundinni aðferð verður haldið í Selárdal við Steingrímsfjörð sunnudaginn 7. febrúar og hefst kl. 13. Keppt verður í eftirfarandi vegalengdum: Karlar 17 ára og eldri 10 km, konur 17 ára og eldri 5 km, 15-16 ára 5 km,  13-14 ára 3,5 km,  11-12 ára 2,5 km,  9-10 ára 2 km og 8 ára og yngri 1 km án tímatöku. Skráning fer fram á staðnum og er mótið öllum opið. Mótið átti að fara fram um síðastliðna helgi en var frestað þá vegna veðurs.