26/04/2024

Reykhóladagurinn í dag

Það eru hátíðahöld víðar en á Ströndum í dag, því Reykhóladagurinn verður haldinn í dag með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá. Í gær var haldin spurningakeppni Reykhólahrepps þar sem sveitungar glímdu við margvíslegar spurningar og létu reyna á leikhæfileikana. Í dag er svo viðamikil dagskrá, skipst á vinakveðjum við Strandamenn, gengið á Geitafell, leiktæki, hestaferðir, sveitamarkaður, tombóla, véla og bátasýning, leiklist, glæsileg hlunnindaveisla og dansleikur. Vefurinn strandir.saudfjarsetur.is hvetur alla sem tök hafa á að taka þátt í fjörinu á Reykhóladegi.

Föstudagurinn 28. ágúst
• Spurningakeppni Reykhólahrepps. Keppt verður í þriggja manna liðum þar sem sveitungar spreyta sig á ýmis konar spurningum og leiklistarhæfileikarnir fá að njóta sín. Keppnin fer fram í íþróttahúsinu. Hverjir standa uppi sem sigurvegarar?

Laugardagurinn 29. ágúst
10:00 Skipst verður á kveðjum á Arnkötludal á milli Reykhólahrepps og Strandabyggðar. Fulltrúar hreppsins afhenda
vinakveðju og stein til Strandamanna.
10:00 Gönguferð um Reykhólasveit. Gengið verður á Geitafell. Gangan hefst fyrir ofan veginn hjá Mýrartungu (skilti
verður á staðnum), ca. 2-3 klst.
13:30 Dagskrá við Hlunnindasýninguna.
• Hoppukastalar.
• Krökkum gefst kostur á að fara á hestbak.
• Sveitamarkaður, þar sem allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
• Ís frá Erpsstöðum.
• Tombóla á vegum Vinafélags Grettislaugar, glæsilegir vinningar.
• Dráttarvélar.
• Bátasýning.
• Áætlunarferðir um Reykhóla á heyvagni.
• Kaffisala að hætti Kvenfélagsins Kötlu.
• Ljósmyndasýning Björns Antons frá Bátadögum.
• Frítt í sund, sundlaugin er opin kl. 14 – 20.
15:30 Tekið verður á móti maraþonhlaupurum í Haustlitahlaupinu. Þeir sem vilja geta hlaupið með frá Bjarkalundi eða Börmum. Skráning hjá Svanborgu í síma 869-8713.
16:30 Leikhópurinn Lotta verður í Kvenfélagsgarðinum. Þar sem ævintýrin lifna við.
19:30 Íþróttahúsið opnar fyrir gesti.
20:30 Kvöldverður hefst, þar sem gestir gæða sér á kræsingum sem eiga uppruna sinn í Reykhólasveit, t.d.
lambakjöt, selur og lundi. 0-6 ára: frítt 7-14 ára: 1500 kr. 15 ára og eldri: 3000 kr. Veislustjóri og skemmtikraftur: Helga Braga.  Miðapantanir hjá Ástu Sjöfn s. 849-8531 og Rebekku s. 894-9123. Dansleikur með hljómsveitinni Festival fram eftir nóttu.