27/04/2024

Reiðnámskeið hjá Strandahestum

 Strandahestar verða með reiðnámskeið fyrir börn og fullorðna dagana 24.-29.
júní nk. Kennt verður í litlum hópum 4- 6 manns, í sex skipti, klukkutíma í
senn. Kennslan fer fram á Víðidalsá á daginn og kvöldin allt eftir þörfum
þátttakenda. Námskeiðið kostar 8000 kr. Fyrir þá sem eru lengra komnir í að
sitja og stjórna hesti verður boðið upp stutta reiðtúra í nágrenni Hólmavíkur.
Ennfremur verður boðið upp á sérstakan hóp fyrir óvana fullorðna. Upplýsingar og
skráning er í síma 8452748 og á netfangið peturbjork@simnet.is. Kennarar verða
Björk Ingvarsdóttir og Victor Örn Victorsson.