27/04/2024

Öskudagsball á Hólmavík

Foreldrafélög Grunnskólans og Leikskólans á Hólmavík standa fyrir Öskudagsballi í félagsheimilinu á Hólmavík á morgun kl. 17:00, en þá er einmitt öskudagur. Þar mæta öll börnin í grímubúningum, væntanlega södd og sæl eftir sælgæti sem þau fá í fyrirtækjaheimsóknum yfir daginn. Svo verður dansað og kötturinn sleginn úr tunnunni að venju.