26/04/2024

Ómar Ragnarsson og Lína langsokkur á Ólafsdalshátíð

Ólafsdalur um miðnættið

Hin árlega Ólafsdalshátíð verður að þessu sinni haldin laugardaginn 6. ágúst 2016. Að hátíðinni er ókeypis aðgangur og skemmtiatriði, happdrætti, fróðleikur, markaður og málverkasýningar eru á dagskránni. Sjálf hátíðardagskráin hefst kl. 13:00, en markaðurinn opnar kl. 12:00 og um morguninn er rútuferð í kringum Gilsfjörð á dagskránni. Til sölu verða kaffi, djús, kleinur og flatkökur á sanngjörnu verði. Þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu er ráðlagt að hafa með sér reiðufé, því netsamband er stopult í Ólafsdal. Yfirlit yfir viðburði dagsins má nálgast hér að neðan:

Ólafsdalshátíð 6. ágúst – dagskrá

11:00-12.20 Ferð með nýuppgerðu rútunni Soffíu II (Bedford árgerð 1940) í kringum Gilsfjörð. Leiðsögumaður: Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli í Reykhólasveit. Mæting kl. 10:45.

11:00 Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst. 1. vinningur: flugmiðar fyrir tvo að eigin vali til Evrópu með Icelandair. Fjöldi annarra góðra vinninga. Miðaverð 500 kr.

12.00-17.00 Ólafsdalsmarkaður, grænmeti og sýningar í skólahúsinu: Lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti, Erpsstaðaís, kræklingur frá Nesskel. Fjölbreyttur matar- og handverksmarkaður.
o Ólafsdalsskólinn 1880-1907: fastasýning  á 1. hæð.
o Dalablóð: málverkasýning Guðrúnar Tryggvadóttur á 2. hæð.

13.00  HÁTÍÐARDAGSKRÁ
Kynnir: Ómar Ragnarsson, skemmtikraftur með meiru.
Erindi: Þorsteinn Sæmundsson, alþingismaður og fyrrverandi kaupfélagsstjóri Kaupfélags Saurbæinga.
Tónlist: Drengjakór íslenska lýðveldisins.
Erindi: Dalablóð; sýning um formæður mínar  úr Dölunum: Guðrún Tryggvadóttir, listakona.
Erindi: Grasið og ljárinn; hugleiðingar um ættboga Ólafsdalshjóna: Sr. Gunnar Kristjánsson, prófessor emerítus.
Tónlist: Drengjakór íslenska lýðveldisins.
Leiklist: Lína langsokkur (Ágústa Eva Erlendsdóttir) skemmtir börnum 0-99 ára og gefur sér tíma með þeim.

16.30 Dregið í Ólafsdalshappdrættinu.

Hestar teymdir undir börnum.
Rútan Soffía II og önnur virðuleg farartæki til sýnis.