29/03/2024

Óánægja með skítadreifingu

Talsverðrar óánægju hefur orðið vart meðal margra íbúa Hólmavíkur með að skít hafi verið dreift á tjaldvæðið á Hólmavík síðustu daga, en megna skítafýlu leggur þar um kring. Þykku lagi af blautum skít hefur verið dreift yfir tjaldsvæðið en margir hafa sett sig í samband við strandir.saudfjarsetur.is og furðað sig á því að þessi árstími hafi verið valin til skítadreifingarinnar. Ekki er nema vika í hvítasunnu en von er á gestum á tjaldsvæðið yfir hvítasunnuhelgina, en þá helgi fara ávallt fram fermingar á Hólmavík. Slökkvibíll frá Slökkviliði Hólmavíkur var mættur á tjaldsvæðið um hádegisbil til að reyna að skola sem mestu af skítnum í burtu. 


Mönnum er enn í fersku minni ástand sem skapaðist á Ísafirði fyrir um það bil tveimur árum þegar sama atvik átti sér stað þar, en margir tjaldbúar þurftu þá að leita annað til að hæla niður næturstaðinn.

.
Slökkvibíllinn að störfum við glæsilegt tjaldsvæðið á Hólmavík
Ljósmynd: Ásdís Jónsdóttir