30/04/2024

Kynning á svæðisleiðsögunámi á Vestfjörðum

kerlingarfoos1

Þriðjudaginn 9. september kl. 18:00 verður kynning á Svæðisleiðsögunámi hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, en þetta nám stendur Vestfirðingum til boða nú í vetur. Á fundinum verður farið yfir fyrirkomulag námsins, s.s. uppbyggingu, námsþætti og kennara. Fundurinn verður í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12 á Ísafirði og sendur út í gegnum fjarfundabúnað til Hólmavíkur (þar sem fundurinn verður í Hnyðju, sal Þróunarsetursins), Bíldudals (Skrímslasetrinu), Patreksfjarðar (Skor) og Reykhóla (í grunnskólinn). Nánari upplýsingar má finna hér á vef Fræðslumiðstöðvarinnar og einnig hjá Sólveigu Bessu Magnúsdóttur umsjónarmanni með náminu í síma 849 8691. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér þetta spennandi nám, en skráningarfrestur er til 15. september.