03/05/2024

Kvennaganga á Hólmavík í kvöld

Frá kvennadeginum 2005Í fréttatilkynningu í tilefni af kvennréttindadeginum kemur fram að konur á Ströndum ætla í gönguferð í tilefni af 19. júní í kvöld. Gangan er einnig til að til að leggja áherslu á bætta heilsu og minna á átakið Á allra vörum sem er átak gegn brjóstakrabbameini. Gengið verður frá söluskála N1 á Hólmavík niður á Café Riis þar sem meiningin er að fá sér kaffibolla og spjalla saman. Gangan leggur af stað kl. 19:00 og eru allar konur sem sjá þessa auglýsingu í tölvunni sinni vinsamlegast beðnar um að láta  vinkonur sínar sem ekki eru tölvuvæddar vita af göngunni.

Á allra vörum – átak gegn brjóstakrabbameini

„Á allra vörum“ er yfirskrift átaks til að safna fé til að kaupa nýjan stafrænum röntgenbúnaði sem greinir brjóstakrabbamein betur en hægt hefur verið fram að þessu. Fjármunum verður safnað með því að selja bleikt varalitargloss frá Yves Saint Laurent merkt átakinu. Hvert gloss kostar 2.000 krónur en allur ágóði af sölunni rennur til styrktar Krabbameinsfélaginu. Átakið hófst formlega í húsnæði Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð í dag þegar tíu þjóðþekktar konur fengu fyrstu glossin afhent.

Nýr tækjabúnaður leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins eykur möguleika á að greina krabbamein í brjóstum á frumstigi en góður árangur í meðferð þess ræðst ekki síst af því að það greinist sem allra fyrst. Auk tækjakaupanna er markmið átaksins að leggja Krabbameinsfélaginu lið við að koma nýjum tækjum sem fyrst í gagnið og upplýsa, með ýmiss konar kynningarefni, hve alvarlegur sjúkdómur brjóstakrabbamein er.
Að tíu konur taki við fyrstu varalitaglossunum er táknrænt fyrir það að tíunda hver kona hér á landi greinist með brjóstakrabbamein einhvern tíma á ævinni. Glossin verða til sölu næstu fjóra mánuði um borð í flugvélum Icelandair og í fríhafnarverslunum Flugfélags Íslands í Reykjavík og á Akureyri. Glossin verða einnig seld fyrirtækjum sem vilja styrkja átakið með því að kaupa þau handa starfsfólki sínu.

„Það er ánægjulegt að finna þá jákvæðni og gleði sem einkennir þetta sjálfsprottna fjáröflunarátak. Við metum mikils þann samhug og kraft sem beinir velvilja að því mikilvæga verkefni sem bætt leit að brjóstakrabbameini er,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.

Styrktaraðilar átaksins „Á allra vörum“ eru Heildverslun Halldórs Jónssonar, Saga Boutique og Flugfélag Íslands. Konurnar tíu sem tóku við fyrstu glossunum eru Vigdís Finnbogadóttir, verndari Krabbameinsfélagsins, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík,  Margrét Kristmannsdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnurekstri, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Ragnheiður Gröndal söngkona, Brynja Nordquist, flugfreyja hjá Icelandair, og Ingunn Sigurðardóttir, flugfreyja hjá Flugfélagi Íslands.