01/05/2024

Jólaföndur foreldrafélagsins á Hólmavík


Jólaföndur Foreldrafélagsins verður haldið í dag, þriðjudaginn 4. desember kl. 18:00, í Félagsheimilinu á Hólmavík. Í ár er ætlunin að mála á keramik og gefst fólki kostur á að kaupa eina keramikstyttu til þess að mála fyrir kr. 1.200 kr, en einnig verður ódýrara föndur á staðnum fyrir þá sem vilja. Innifalið í verði er afnot af málningu og penslum sem verða á staðnum (ef fólk á pensla má það gjarnan hafa þá meðferðis). Ef að fólk vill koma og föndra eitthvað annað er það velkomið, t.d. jólakort eða það sem fólki dettur í hug. Ljúf og notaleg stemning og jólalögin munu óma. Allir hjartanlega velkomnir.