Laugardaginn 11. któber verður haldin héraðssýning lambhrúta á vegum Félags sauðfjárbænda í Strandasýslu. Keppnin verður haldin bæði í Hrútafirði á Bæ hjá Gunnari, fyrir bæi sunnan varnarlínu í Bitrufjarðarbotni og hefst þar kl 11:00. Einnig verður keppni á Heydalsá hjá Ragnari og Sigríði kl 15:00. Allir eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir, bæði keppendur og áhorfendur.
![](http://strandir.saudfjarsetur.is/wp-content/uploads/hrutadomar2010e1.jpg)