02/05/2024

Haustþing Þjóðfræðistofu á laugardag

Kristinn Schram og Cliona O´CarrollÞjóðfræðistofa býður alla velkomna á Haustþing stofunnar á Hólmavík, laugardaginn 13. september kl. 15:00, þar sem fræðasetrið verður kynnt fyrir áhugasömum. Þá mun Cliona O’Carroll flytja erindi um gerð þjóðfræðilegra útvarpsþátta, en Cliona er lektor við Háskólann í Cork á Írlandi og situr í fagráði Þjóðfræðistofu. Þá verður farið í vettvangsferð um náttúru og minjar Stranda og slegið upp veislu. Kristinn Schram forstöðumaður Þjóðfræðistofu tekur við skráningu í vettvangsferð, mat og gefur allar frekari upplýsingar í netfanginu kristinn@akademia.is.

Þjóðfræðistofa er rannsóknarstofnun og fræðasetur sem starfrækt er á Ströndum og sinnir rannsóknum og miðlun á landsvísu. Fyrirhugað er að hún verði sjálfbær vinnustaður háskólamenntaðra starfsmanna sem hafa menntun í íslenskum fræðum, þjóðfræði, sagnfræði og miðlun menningarsögu. Á Þjóðfræðistofu er unnið að rannsóknar- og miðlunarverkefnum um íslenska þjóðfræði og margvíslegum samvinnuverkefnum á sviði þjóðfræði, menningar og lista. Á meðal yfirstandandi verkefna eru rannsóknir á ímynd Íslendinga, matarmenningu og gerð heimildamyndar um slóðir Gísla sögu Súrssonar. Jafnframt kemur Þjóðfræðistofa að upplýsingamiðstöð um íslenska þjóðtrú og þjóðfræði, þar sem veittar eru upplýsingar og fyrirspurnum svarað frá fjölmiðlum, listamönnum, stofnunum og einstaklingum, bæði hér á landi og erlendis frá.

Erindi Cliona O’Carroll nefnist "How’s it going, boy?": community ethnography for radio in Cork, Ireland. Þar fjallar hún um hið svokallaða Northside Folklore Project sem er samfélagsdrifin þjóðfræðisöfnun þar sem safnað var frásögnum fólks í Cork á Írlandi. Gerð var þjóðfræðileg útvarpsþáttaröð sem kannaði borgina frá  sjónarhóli íbúanna og endurspeglaði þannig fjölbreyttan þjóðernisbakgrunn og persónulegar upplifanir fjölmargra Corkverja. 

Verkefnið vakti upp margar spurningar um samspil þjóðfræði og fjölmiðlunar, fólksflutninga og staðarvitund  og hvaða hagnýtu möguleikar kunni að felast í samfélagslegum þjóðfræðiverkefnum. Nánar um verkefnið á http://www.ucc.ie/research/nfp. Erindið verður flutt á ensku.