04/05/2024

Haustmarkaður á Hólmavík

580-berjasulta

Laugardaginn 10. september frá kl. 14-18 verður haustmarkaður við Hnyðju á Hólmavík (Þróunarsetrið við Höfðagötu). Þar gefst fólki tækifæri á að selja ýmsan varning, t.d. sultur, ber, grænmeti, kjöt, fisk eða önnur matvæli, handverk og í raun allt sem því dettur í hug. Ef veður leyfir er ætlunin að um götumarkað eða útimarkað verði að ræða, en ef veðrið verður til vandræða verður markaðurinn innandyra. Hægt verður að komast í rafmagn. Áhugasamir um þátttöku skrái sig hjá Salbjörgu í s. 865-3838 eða sendi tölvupóst á salbjorg@holmavik.is fyrir 9. september.