29/04/2024

Haustfagnaður í Dölunum

Um næstu helgi verður haldinn árlegur haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) og er dagskráin nú orðin aðgengileg á vefnum www.dalir.is. Margt er til skemmtunar á þessari hátíð eins og sjá má hér að neðan, m.a. lambhrútasýningar og opin fjárhús, harmonikkutónlist og hagyrðingar, sviðaveisla, hrútamót í fótbolta, Íslandsmeistaramót í rúningi, vélasýning, prjónasamkeppni, grillveisla og dansleikur.

Föstudagurinn 22. október 

14:30   Stórholt í Saurbæ
Lambhrútasýning norðan girðingar
Opin fjárhús
 

19:30

 

Dalabúð í Búðardal

Sviðaveisla
Ungir harmonikkuleikarar
Hagyrðingar
Harmonikkuball með Geirmundi

 

Laugardagurinn 23. október

10:00 Stóra-Vatnshorn í Haukadal
Lambhrútasýning sunnan girðingar
Opin fjárhús
Heimalingar
 

10:00

 

Laugar í Sælingsdal

Opna hrútamótið í knattspyrnu
 

13:00

 

Reiðhöllin í Búðardal

Íslandsmeistaramótið í rúningi
Vélasýning
Markaður
Prjónasamkeppni
Heimalingar
Barnadagskrá
 

18:30

 

Dalabúð í Búðardal

Grillveisla
Verðlaunaafhendingar
Myndasýningar

 

00:00 Dansleikur með Hvanndalsbræðrum