26/04/2024

Handverksmarkaði Strandakúnstar að ljúka

Handverksmarkaði Strandakúnstar á neðstu hæð Þróunarsetursins á Hólmavík verður lokað miðvikudaginn 15. september. Einnig verður lokað laugardaginn 11. sept. vegna kindasmölunaræfinga sem afgreiðsludömur hyggjast taka þátt í. Því eru síðustu forvöð þetta sumarið að versla sér frábæra handverkshluti til eignar, afmælis- og jólagjafa. Söluaðilar eru hvattir til að nálgast óselda muni á markaðinn á mánudag og þriðjudag milli kl. 14 og 16. Strandakúnst þakkar viðskiptavinum og handverksframleiðendum fyrir frábært sumar.