02/05/2024

Hamingjusamþykkt á hátíðarfundi sveitarstjórnar

Í gærkveldi var haldinn sérstakur hátíðarfundur í sveitarstjórn Strandabyggðar í upphafi kvöldvökunnar á Klifstúni og hafa sjálfsagt aldrei verið fleiri áheyrendur að sveitarstjórnarfundi á Hólmavík. Þar var meðal annars staðfest Hamingjusamþykkt Strandabyggðar. Líklegt má teljast að um sé að ræða fyrstu hamingjusamþykktin sem gerð hafi verið í sveitarfélagi á Íslandi og áhugavert að vita hvort slíkar samþykktir þekkist annarsstaðar í heiminum. Hamingjusamþykktin er svohljóðandi:

Hamingjusamþykkt Strandabyggðar

Hamingjan er eitt af leiðarljósum í áframhaldandi uppbyggingu í Strandabyggð. Lífsgæði íbúa á Ströndum skipta miklu máli og þau þarf að efla með fjölbreyttum ráðum.

Ræktum hamingjuna innra með okkur og stuðlum að aukinni gleði og lífsfyllingu hjá okkar nánustu, vinum og samferðamönnum, með orðum og gjörðum. Munum að bros í amstri hversdagsins getur gert kraftaverk, það getur dimmu í dagsljós breytt. Hið sama gildir um hrós og þakklæti fyrir það sem vel er gert. Jákvæð og uppbyggileg hvatning til góðra verka er varða sem vísar veginn í átt að betra samfélagi.

Virk þátttaka hvers einstaklings í samfélaginu er keppikefli og miklu skiptir að jákvæðni, virðing og samkennd einkenni mannlíf á Ströndum. Íhugum öll, hvert og eitt okkar, með hvaða hætti við getum lagt okkar af mörkum.

Gleðjumst saman, höfum hamingjuna í hávegum. Gerum alla daga að hamingjudögum. 

 Samþykkt samhljóða á fundi þann 1. júlí 2011 af sveitarstjórn Strandabyggðar.

bottom

atburdir/2011/640-hatidarfundur1.jpg

Hátíðarfundur hreppsnefndar – ljósm. Ester Sigfúsdóttir