27/04/2024

Grunnskólinn á Hólmavík settur

Nú eru starfsmenn Grunn- og Tónskólans á Hólmavík að hefja störf að nýju
eftir sumarleyfi og í óðaönn að undirbúa skólaárið 2011-2012. Skólasetning verður á morgun í Hólmavíkurkirkju, föstudaginn 19. ágúst kl. 12:00.
Eftir skólasetningu fara nemendur í skólann og hitta kennarana sína og
fá stundaskrár, skóladagatal, innkaupalista og fleiri gagnleg gögn. Hefðbundið skólastarf hefst eftir stundaskrá mánudaginn 22. ágúst kl. 8:10.