02/05/2024

Gríptu boltann! í Sævangi

Framleiðnisjóður landbúnaðarins og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins standa í ágústmánuði fyrir fundaherferð með það markmið að hvetja til nýsköpunar í sveitum. Einn slíkur verður haldinn á Sauðfjársetrinu í Sævangi kl. 13:00 fimmtudaginn 23. ágúst. Aðalfyrirlesari fundanna er Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta og mun hann flytja erindi sem ber nafnið leiðin til sigurs. Erindið fjallar um árangursríka markmiðssetningu og hvað þarf til að ná framúrskarandi árangri. Fjallað er um uppbyggingu liðsheildar, samskipti og innleiðingu breytinga.

Að auki eru fengnir til leiks reynsluboltar í sölu vöru og þjónustu beint frá býli, sem munu miðla af reynslu sinni varðandi þróun og markaðssetningu. Þá verður erindi frá ráðunautum RML varðandi ýmsa sjóði sem hægt er að sækja styrki í, ásamt því hvernig umsóknarferlið fer fram.