02/05/2024

Flugeldasala og áramótabrenna Dagrenningar á Hólmavík

640-fluge1

Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hólmavík verður í björgunarsveitarhúsinu Rósubúð að Höfðagötu 9 á Hólmavík (gengið inn frá Hlein). Opið verður laugardag 29. des. kl. 14.00-20.00, sunnudag 30. des. kl. 14.00-22.00 og gamlársdag 31. des. kl. 10.00-15.00. Áramótabrenna verður á Skeljavíkurgrundum á gamlársdag kl.18:00 og flugeldasýning. Flugeldasala björgunarsveitarinnar Dagrenningar á þrettándanum verður frá kl. 15:00-18.00 og flugeldum verður skotið á loft frá hafnarsvæðinu kl. 20.00 á þrettándanum.