29/04/2024

Fjöldi laga í Hamingjulagasamkeppni

 Lagasamkeppni Hamingjudaga verður haldin næstkomandi föstudagskvöld, þann 20. maí kl. 20:00, í Félagsheimilinu á Hólmavík. Hvorki fleiri né færri en sjö lög keppa um að verða kosið Hamingjulagið 2011, en áhorfendur í sal kjósa það lag sem þeim finnst best. Stigahæsta lagið verður gefið út fyrir Hamingjudagana sem fara fram 1.-3. júlí í sumar. Nöfnum höfunda er haldið leyndum þar til úrslit liggja fyrir, en allnokkrir flytjendur ferðast um langan veg til að taka þátt í keppninni í ár. Lagaflóran er allt frá djassskotnum vísnasöng að teknói. Allir eru hjartanlega velkomnir á keppnina, en aðgangseyrir er aðeins kr. 1000 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri.