28/04/2024

Ferðamálastofa fundar á Hólmavík

645-amstur8

Ferðamálastofa býður til funda um landið vegna þróunarverkefnis um endurskoðun upplýsingaveitu til ferðamanna. Verkefnið er á forræði Ferðamálastofu og verkefnisstjóri þess er Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir. Fundur verður haldinn á Hólmavík (Galdrasafninu) mánudaginn 14. mars kl. 12:00. Súpa í boði Ferðamálastofu. Við hvetjum sem flesta til að mæta og taka þátt í umræðunum um framtíðarskipan upplýsingaveitu í landhlutanum. Tilkynna þarf þátttöku á tölvupóstfangið hrafnhildur@ferdamalastofa.is fyrir kl. 13:00 föstudaginn 11. mars. 

Verkefnið er unnið samkvæmt nýjum vegvísi og eru markmið þess að:

  • Tryggja að bestu og nákvæmustu upplýsingar hvað varðar öryggi ferðamanna séu þeim alltaf aðgengilegar allt árið um kring um allt land.
  • Tryggja gæðastarf upplýsingaveitu á landsvísu.
  • Finna nýjar tæknilausnir sem nýta má utan eiginlegra upplýsingamiðstöðva.
  • Nýta og styðja við það stoðkerfi gestastofa, safna og annarra opinberra eininga sem fyrir er um allt land.
  • Nýta það fjármagn sem málaflokkurinn fær á sem hagkvæmastan en jafnframt árangurríkastan hátt.

Dagskrá fundanna er eftirfarandi:

  • Kynning á Þróunarverkefni um endurskoðun upplýsingaveitu.
  • Kynning á niðurstöðum fyrsta fundar sem haldinn var með forsvarsmönnum landshlutamiðstöðva, Umhverfisstofnunar og þjóðgarða í byrjun desember.
  • Kynning á niðurstöðum kostnaðargreiningar á upplýsingaveitu opinberra aðila á landsvísu og eftir landshlutum.
  • Hópavinna og umræður – framtíðarskipan upplýsingaveitu í landshlutanum.
  • Næstu skref (skipan vinnuhópa og fleira).