29/04/2024

Endurbygging furubryggju í Kokkálsvíkurhöfn boðin út

580-drangsnes9

Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að sveitarstjórn Kaldrananeshrepps hefur óskað eftir tilboðum í verkið Kokkálsvíkurhöfn, endurbygging furubryggju. Verkið felst í að endurbyggja um 12 metra furubryggju. Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. júlí 2015. Útboðsgögn eru seld hjá Vegagerðinni í Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og skrifstofu Kaldrananeshrepps, Holtagötu á  Drangsnesi og er verð þeirra 5.000 kr. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. maí 2015 og verða þau opnuð kl. 14:15 sama dag.

Helstu verkþættir eru:

Bryggjurif  …………………………………………………………      80 m²
Jarðvinna  ………………………………………………………….
Steypa landvegg  ………………………………………………      12  m
Reka niður bryggjustaura  …………………………………..      7 stk.
Endurbyggja bryggju úr gagnvarðri furu (NTR-M)  .. 108 m²