26/04/2024

Draugasaga sýnd á fimmtudagskvöldið

IMG_8297

Fimmtudagskvöldið 15. okt. verður þriðja sýning á einleiknum Draugasaga í félagsheimilinu Sævangi. Það er Leikfélag Hólmavíkur sem setur verkið upp í samvinnu við Sauðfjársetur á Ströndum. Fyrstu sýningar hafa tekist mjög vel, en leikritið byggir á þjóðsögum af svæðinu, sígildri mannvonsku og margvíslegum myrkraverkum fyrri alda. Verkið er ekki við hæfi barna 12 ára og yngri. Á sýninguna á fimmtudaginn er mæting kl. 20:00 og þá verður súpa á boðstólum fyrir sýningu og svo kaffi á eftir og aðgöngumiðinn kostar 2.800.- með veitingum. Sýningin sjálf er um klukkustund. Strandamenn og nærsveitungar eru hvattir til að fjölmenna, pöntunarsími er 693-3474 (Ester) og nóg af lausum sætum.

Jón Jónsson á Kirkjubóli er höfundur verksins og leikstýrir Draugasögu, en Arnór Jónsson er leikarinn. Hemúllinn samdi hljóðmyndina, Ásta Þórisdóttir og Ester Sigfúsdóttir sjá um förðun og búninga og Jón Valur Jónsson um tæknimál ásamt Jóni. Hugmyndin er svo að í vetur, að minnsta kosti til áramóta, geti hópar sem eiga leið á Strandir í ýmsum erindagerðum pantað sér sýningu á Draugasögu í Sævangi og veitingar með á Sauðfjársetrinu eftir því sem áhugi er á.