05/05/2024

Barmahlíðardagurinn á sumardaginn fyrsta

Á hverju ári er haldið upp á sumardaginn fyrsta á Reykhólum á svokölluðum Barmahlíðardegi og það verður einnig gert nú. Strandamenn og nærsveitungar eru boðnir velkomnir á Barmahlíðardaginn, en þar er margt til gamans gert, bingó, myndlistarsýning og kökubasar, íþróttasprell og fleira. Skemmtidagskrá með Gunna og Felix verður kl. 17:00, pizzuveisla og frítt í sund. Dagskrá Barmahlíðardagsins fylgir hér að neðan.

Barmahlíðardagurinn, sumardagurinn fyrsti 22. apríl 2010
  
 
Kl.    13:00       Barmahlíð
Handavinnusýning

Kl.      14:00        Bingó eldri borgara 

kl.    15:00       Íþróttahús
Myndlistarsýning  Sigfríð B. Thorlacius.
Kökubasar Vinafélags Grettislaugar.

Kl.     15:30         Íþróttasprell  – fyrirtækjakeppni / liðakeppni.
Skráning liða hjá Ingibjörgu Þór  (434-7880     864-2712)

Kl.     17:00                Skemmtidagskrá með Gunna og Felix.
        
Á planinu fyrir framan verður Lögreglan á Patreksfirði með hjólaskoðun.

Kl.    18:30       Matsalur Reykhólaskóla
Pizza – nemendaráð Reykhólaskóla bakar pizzur og selur á sanngjörnu verði.

Kl.    18:00 – 21:00         Grettislaug – frítt í sund

 Hlökkum til að sjá ykkur – Allir velkomnir.