18/04/2024

Aukið virði sjávarfangs

Frá höfninni á HólmavíkÁ morgun, föstudaginn 1. apríl, kl. 10:00 verður haldinn almennur kynningarundur á Ísafirði um rannsóknir og leiðir til að auka virði sjávarfangs. Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða standa fyrir fundinum sem er öllum opinn.  Fundurinn verður haldinn í fundarsal Þróunarseturs Vestfjarða á Ísafirði. Dagskrá fylgir hér á eftir.

Dagskrá fundarins;

Kl. 10.00  Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Rf
     Próteinrannsóknir
Kl. 10:15 Rannveig Björnsdóttir, deildarstjóri Rf
     Fiskeldisrannsóknir á Rf – stefna og markmið
Kl. 10:25 Sigurjón Arason, verkefnisstjóri hjá Rf. 
     Vinnsluspá – verkunarspá
Kl. 10:35 Birna Guðbjörnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Rf
     Hreinlæti við vinnslu sjávarafurða – rannsóknir á Rf.
Kl. 10:45 Þorleifur Ágústsson, verkefnisstjóri hjá Rf
     Þorskeldisrannsóknir í sjókvíum – lífeðlisfræði vaxtar og kynþroska
Kl. 10:55 Fyrirspurnir og umræður

Fundarstjóri verður Shiran Þórisson, Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða. Fundurinn er öllum opin en til að auðvelda skiplag fundarins er æskilegt að fundargestir skrái sig í síma 450 3000.