29/04/2024

Auglýst eftir forstöðumanni Þjóðtrúarstofu

300-logo-tjodtruarstofanStrandagaldur mun birta atvinnuauglýsingu í helstu dagblöðum landsins n.k. sunnudag þar sem óskað verður eftir umsóknum um stöðu forstöðumanns Þjóðtrúarstofu á Ströndum. Um er að ræða nýtt fræðasetur á Hólmavík á sviði þjóðfræði sem tilvonandi forstöðumaður tekur þátt í að móta og þróa. Stefnt er að ráðningu annarra starfsmanna strax á þessu ári í náinni samvinnu við forstöðumann. Helstu  verkefni Þjóðtrúarstofu verða rannsóknir og miðlun menningararfsins í samvinnu við fjölda ólíkra aðila, mennta- og menningarstofnanir.

Þá verður jafnframt unnið að uppbyggingu menningar- og menntatengdrar ferðaþjónustu, skráningarverkefnum tengdum þjóðfræði og sagnfræði, námskeiðahaldi og kennslu og umsjón höfð með upplýsingamiðstöð um íslenska þjóðtrú. Auglýsinguna má nálgast með því að smella hér.