26/04/2024

Átján bækur frá Vestfirska forlaginu

Jón Hjartarson les upp á bókasafninu á HólmavíkVestfirska forlagið hefur síðustu 15 árin verið öflugt við útgáfu margvíslegra bóka sem flestar tengjast Vestfjörðum og Vestfirðingum. Bókaútgáfan gefur út 18 titla á árinu, 15 bækur á íslensku og 3 á ensku, en forlagið hefur hleypt af stokkunum bókaflokkum á ensku sem einkum eru ætlaðar ferðamönnum. Í þeim eru sýnishorn og frásagnir úr hinum mikla sagnabálki sem forlagið hefur gefið út. Í bókunum að vestan, sem eru orðnar á þriðja hundraðið, er efni úr nánast öllum sveitarfélögum á Vestfjörðum frá ýmsum tímum. Höfundarnir eru flestir Vestfirðingar.

Bækurnar 2011

Frá Bjargtöngum að Djúpi. Nýr flokkur  4. bindi. Áður eru komnar út þrettán bækur í þessum bókaflokkum þar sem fjallað er um vestfirskt mannlíf í myndum og máli að fornu og nýju.

Vestfirskar konur í blíðu og stríðu, 2. bók. Eftir Finnboga Hermannsson. Hvar eru konurnar í bókunum að vestan? Svo var spurt í fyrra. Eru þær kannski ennþá bak við eldavélina! Yfirleitt eru þetta nú karlar að skrifa um karla. Merkileg uppgötvun!

Hjólabókin. Dagleiðir í hring á hjóli um Vestfirði. 1. hefti. Eftir Ómar smára Kristinsson. Það er ekki amalegt að hjóla um Vestfirði með þennan vandaða leiðarvísi sér við hönd, sem sennilega á sér enga hliðstæðu hér á landi. Kemur einnig að góðum notum fyrir þá sem eru akandi.

Sjómannslíf. Lífið um borð, náttúran og lífríkið. Eftir Eyþór Jóvinsson. Óvenjuleg ljósmyndabók frá vinnustað sjómannsins. Myndir af  skipsfélögum, fallegri náttúru og lífinu í sjónum. Jólabók bæði sjómanna og landkrabba!

Vesturvirkið. Vestfirðir í kalda stríðinu. Eftir Finnboga Hermannsson. Sagnfræðileg skáldsaga frá tímum kalda stríðsins þar sem ameríska radarstöðin á Straumnesfjalli kemur við sögu.

Veislan í norðri. Eftir Jón Hjartarson. Síldarárin á Íslandi 1960-1967 voru uppgripaár. Allir vildu græða. Aðal síldarsérfræðingur okkar, Jakob Jakobsson, varaði við hruni norsk-íslenska síldarstofnsins 1966. Enginn hlustaði. Svo lauk veislunni skyndilega. Kannast menn við prógrammið?

Í björtum Borgarfirði. Trönustrákur segir frá. Eftir Helga Kristjánsson. Höfundur ólst upp við Hvítá í Borgarfirði. “Lífið við ána var aldrei fábreytt. Umhverfið bjó yfir seiðandi töfrum og laðaði bæði menn og dýr. Sá sem elst upp í slíkri paradís gleymir því aldrei, alveg sama hversu langt hann flytur og hversu vel honum líður á nýjum stað.”

Ísafjörður ægifagur. Ljóð eftir Matthías Kristinsson.
Í huga mínum held ég vörð
um heimabæinn bjarta
og geymi ávallt Ísafjörð
innst í mínu hjarta.

Austur og vestur um haf. Frásöguþættir eftir Kristin Snæland. Sagt er frá Kockums skipasmíðastöðinni í Malmö í Svíþjóð, en þar unnu um 300 Íslendingar á sínum tíma. Fjallað er um Esphólin bræður, sem voru merkir frumvöðlar og sambandsskipið Mælifell kemur við sögu. Frásagnir upp á gamlan íslenskan máta.

Þórður Þ. Grunnvíkingur rímnaskáld. Ævisaga eftir Guðlaug Gíslason frá Steinstúni. Magnús Hj. Magússon, Skáldið á Þröm, var náfrændi og besti vinur  Þórðar Grunnvíkings. Þeirra örlög voru um margt lík. Magnús skrifar svo um vin sinn: Þórður Grunnvíkingur var fæddur gáfumaður, hneigður fyrir fróðleik ýmiskonar og einkum fornfræði er snerti land vort og þjóð. Hann var djarfur í lund og lét margt flakka í vísum sínum sem of   nærri þótti fara. Þótt hann rækti erfiðisvinnu sem mest hann mátti, var hann þó jafnan blá-fátækur, já hvernig sem hann leitaði lags, var sem hin sífurlynda norn örbirgðin læsti um hann járngreipum sínum, svo ekkert undanfæri var.

Hlutverkaleikur. Skólastarf utan veggja. Ólafur Guðmundsson og Elísabet Svavarsdóttir tóku saman.
Hvað er hlutverkaleikur, hvernig tengist hugtakið kennslu- og uppeldisfræði og hvernig má nýta hlutverkaleik sem kennsluaðferð?

Vestfirskar sagnir 2. og 3. hefti. Helgi Guðmundsson tók saman. Þessi vestfirski sagnaarfur var lesinn upp til agna á sínum og hefur verið ófáanlegur í áratugi. Við höfum nú byrjað að endurprenta hann og kom 1. heftið út í fyrra.

Öll þau klukknaköll, frásagnir 24 prestkvenna, seinna bindi. Síra Ágúst heitinn Sigurðsson og eiginkona hans Guðrún Lára Ásgeirsdóttir bjuggu til prentunar. Skyggnst um á prestssetrum á Íslandi  á fyrri tíð. Aldrei hefur áður verið fjallað svo ítarlega um störf prestskvenna á Íslandi. Þetta er undirstöðuverk í þeim skilningi. 

Maður sem lánaðist. Hallgrímur Sveinsson tók saman. Sitt hvað í kringum Vestfirðinginn Jón Sigurðsson forseta.

Life and History in the Westfjords of Iceland 1. hefti. Haukur Ingason þýddi. Fjallað er um Dýrafjörð á ýmsum tímum, en hugmyndin er að gefa út eina bók um hvert hérað á Vestfjörðum.

Funny Tales from Daily life in the Westfjords of Iceland. Úrval úr 101 ný vestfirsk þjóðsaga, 1.-3. hefti. Gísli Hjartarson tók saman. Inniheldur eingöngu gamansögur með blönduðu efni hvarvetna af fjörðunum. Haukur Ingason þýddi.

We call him President. Hallgrímur Sveinsson tók saman. Haukur Ingason þýddi. Hér er  fjallað um Vestfirðinginn Jón Sigurðsson og er það æviágrip hans í hnotskurn, þar sem sagt er frá ævi hans og starfi í stuttu, hnitmiðuðu máli.