02/05/2024

Aðventuhátíð Kórs Átthagafélagsins

580-atthagafelagskor

Aðventuhátíð Kórs Átthagafélags Strandamanna verður haldin í Bústaðakirkju sunnudaginn 13. desember kl. 16.30. Stjórnandi er Ágota Joó, einsöngvari verður Þóra Einarsdóttir og Vilberg Viggósson leikur undir á píanó. Hugvekju flytur Ingibjörg Ágústsdóttir frá Steinstúni. Miðaverð við innganginn er 4.000 kr. fyrir fullorðna, frítt fyrir börn hátíðargesta, 14 ára og yngri. Kaffihlaðborð innifalið. Miðaverð í forsölu er 3.500 kr. Vinsamlega hafið samband við Gíslínu (sími 699 8859), Ragnheiði (sími 616 3148) eða aðra kórfélaga til að fá miða í forsölu. Forsölu lýkur föstudaginn 11. desember.