27/04/2024

Aðventuhátíð Kórs Átthagafélags Strandamanna

Aðventuhátíð Kórs Átthagafélags Strandamanna verður haldin 12. desember kl. 16:30 í Bústaðakirkju. Stjórnandi kórsins er Krisztina Szklenár og einsöngvari á tónleikunum er Einar Clausen og píanóleikari Hafdís Pálsdóttir. Barnakórinn syngur undir stjórn Jensínu Waage og Elín Elísabet Jóhannsdóttir flytur hugvekju.
Glæsilegt kaffihlaðborð og mikil jólastemming. Miðaverð er 2.200 kr. fyrir fullorðna og frítt fyrir 14 ára og yngri. Kórinn vonast til að sjá sem flesta á hátíðinni.