05/05/2024

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík

Áttu barn í Grunnskólanum á Hólmavík? Þá máttu ekki missa af þessu! Fimmtudaginn 27. október kl. 18:00 verður aðalfundurForeldrafélags Grunnskólans á Hólmavík haldinn í Félagsheimilinu á Hólmavík. Auk þess að kjósa nýja stjórn verður fjallað um hvernig efla megi samstarf foreldra, barna og skóla. Á dagskrá er skemmtilegt erindi um samskipti foreldra og barna, pizzur í boði Foreldrafélagsins og almenn fundarstörf. 

Dagskrá fundarins:

Kl. 18:00-18.30

Krísusögur: Arnar S. Jónsson, tómstundafulltrúi Strandabyggðar flytur fræðandi og skemmtilegt erindi um samskipti foreldra og barna.

Kl. 18:30-19:00

Matarhlé. Pizzur í boði Foreldrafélagsins, ókeypis fyrir fundargesti.

Kl. 19:00 – 20:00 

Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans við Hólmavík.

1. Skýrsla stjórnar

2. Reikningar síðasta starfsárs

3. Kosning stjórnar, bekkjarfulltrúa og skoðunarmanna

4. Stutt umfjöllun um samráðsfundi, bekkjarkvöld og skólaárið 2011 – 2012

5. Önnur mál