23/04/2024

Vörumiðlun ehf tekur yfir flutningarekstur KSH

Fréttatilkynning
Undanfarnar vikur hafa staðið yfir viðræður milli Kaupfélags Steingrímsfjarðar
og Vörumiðlunar ehf. á Sauðárkróki um að Vörumiðlun ehf. taki við
flutningarekstri kaupfélagsins. Viðræður gengu vel og náðist sátt um samninga á
milli viðkomandi aðila í lok síðustu viku. Skrifað var undir samninga þann 27.
nóvember síðastliðinn um að Vörumiðlun ehf. taki alfarið yfir allan
flutningarekstur kaupfélagsins frá og með 1. desember 2009.

Kaupfélag
Steingrímsfjarðar eignaðist sína fyrstu bifreið árið 1942 og hefur verið með
bílarekstur allar götur síðan eða í um 67 ár. Fyrst um sinn var einungis um
akstur innan héraðs að ræða en eftir að félagið eignaðist sína fyrstu yfirbyggðu
bifreið árið 1962 hófust reglulegar áætlunarferðir milli Hólmavíkur og
Reykjavíkur. Þetta skref sem nú er tekið markar því tímamót í rekstri Kaupfélags
Steingrímfjarðar.

Vörumiðlun ehf. var á stofnuð árið 1996 með samruna
Flutningadeildar KS og Vörufl. Magnúsar Svavarssonar á Sauðárkróki. Varð þá
þegar til öflugt flutningafyrirtæki með afkastamikinn flota flutningatækja af
ýmsu tagi. Á árinu 2004 voru síðan flutningafyrirtækin Húnaleið á Skagaströnd og
Tvisturinn á Blönduósi sameinuð Vörumiðlun. Að endingu var flutningadeild KVH á
Hvammstanga seld Vörumiðlun. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru að Eyrarvegi 21 á
Sauðárkróki en að auki hefur fyrirtækið húsnæði á Blönduósi og á
Skagaströnd.

Undanfarin ár hafa verið Kaupfélaginu erfið í rekstri hvað snýr
að flutningunum og því er rökrétt skref að efna til samstarfs við sterkan
flutningsaðila, sem Vörumiðlun er, við að sinna þeirri þjónustu sem félagið
hefur verið að veita á hagkvæmari máta. Kaupfélag Steingrímsfjarðar mun hér
eftir verða afgreiðsluaðili Vörumiðlunar ehf. á Hólmavík og verður óbreytt
fyrirkomulag frá því sem verið hefur hvað varðar þjónustu, áætlanir og
afgreiðslu. Þá verða bílstjórarnir þeir sömu og verið hefur. Það er von
Kaupfélags Steingrímsfjarðar og Vörumiðlunar ehf. að samstarfið verði farsælt og
að viðskiptavinir beggja aðila verði fyrir sem minnstum óþægindum á meðan þessar
breytingar ganga yfir.

Kaupfélagið vill þakka öllum flutningskaupum ánægjuleg
viðskipti á liðnum árum og jafnframt bjóða Vörumiðlun velkomna á Strandirnar.
Einnig þakkar Kaupfélagið bílstjórum sínum, þeim bræðrum Sigurði Árna og Ágústi
Óskar Vilhjálmssonum, fyrir sín góðu störf og óskar þeim velfarnaðar í starfi
hjá nýjum vinnuveitanda.
 
F.h. Kaupfélags Steingrímsfjarðar, Jón Eðvald
Halldórsson kaupfélagsstjóri
F.h. Vörumiðlunar ehf., Magnús Svavarsson
framkvæmdastjóri