19/04/2024

Vegurinn í Árneshrepp opnaður

Vegurinn í Árneshrepp var opnaður í dag og er nú merktur með hálkublettum á vef Vegagerðarinnar. Samkvæmt upplýsingum á að opna veginn einu sinni í viku fram á vor og er miðað við þriðjudaga. Vegurinn fellur undir svokallaða G-reglu Vegagerðarinnar og er þá miðað við að þjónusta við snjómokstur sé allt að tvisvar sinnum í viku vor og haust meðan snjór á veginum sé ekki  umfram ákveðið magn. Á Fjórðungsþingi Vestfirðinga sem haldið var í haust var samþykkt að skora á yfirvöld að hækka þjónustu á veginum um þjónustuflokk eða upp í F-reglu sem gerir ráð fyrir mokstri tvisvar í viku. 


Á Facebook-síðu Vegagerðarinnar er G-reglan útskýrð svona:

"Heimilt er að moka tvo daga í viku haust og vor á
meðan snjólétt er. Hausttímabil er skilgreint til 1. nóvember og
vortímabil frá 20. mars. Ástandið er skilgreint “snjólétt” þegar um er
að ræða lítið snjómagn og færðarástand telst hvergi
ófært, þungfært eða þæfingur á viðkomandi leið og þegar
þjónustuaðgerðin felst eingöngu í hreinsun akbrautar með
snjómokstursbíl.

Heimilt er að moka vegi sem falla undir G-reglu
einu sinni í viku fram til 5. janúar á kostnað Vegagerðarinnar og eftir
það einu sinni í viku gegn helmingagreiðslu frá sveitarfélagi þannig að
fært sé fyrir fjórhjóladrifin ökutæki og/eða þegar kostnaður við þann
mokstur er að jafnaði ekki meiri en þrefaldur sá kostnaður sem til
fellur þegar leiðin telst snjólétt."