
Í forsendunum er ekki gert ráð fyrir að innheimt verði sérstakt veggjald af notendum vegarins. Einnig kemur fram í skýrslunni að umferð að meðaltali á sólarhring verði um 165 bílar eða um 60.000 bílar á ári og að umferðin aukist í 90.000 bíla á næstu tuttugu árum. Á næstu dögum verður lokið við umhverfismatsskýrslu vegna lagningu vegarins og hún síðan send Skipulagsstofnun til meðferðar. Í framhaldinu verður for- og verkhönnun vegarins boðin út ef fjármögnun tekst og þá verður mögulega hægt að bjóða verkið út sem gæti orðið sex til átta mánuðum síðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leið ehf sem hefur unnið að framgöngu framkvæmdarinnar mörg undanfarin ár.