26/12/2024

Vefurinn strandir.saudfjarsetur.is í loftið!

Jólagjöfin í ár til allra Strandamanna nær og fjær er komin í loftið – héraðsfréttavefurinn strandir.saudfjarsetur.is. Það er fyrirtækið Sögusmiðjan sem stendur fyrir framtakinu, en ritstjóri er Jón Jónsson á Kirkjubóli. Vefurinn verður síðan byggður upp á framlagi fréttaritara sem búa víðs vegar um sýsluna og hver og einn þeirra getur uppfært vefinn og sett inn efni í tölvunni heima hjá sér eða sent það á ritstjórn sem setur það inn.

Nú á slaginu klukkan fjögur sitja fjölmargir fréttaritarar við tölvurnar sínar – norður í Árneshreppi, við Djúp, á Drangsnesi og Hólmavík, í Tungusveit, upp í Kollafirði og inn í Hrútafirði og lyfta saman glasi eða bolla og skála, hver á sínum stað. Meira að segja er einn fréttaritarinn núna suður í Reykjavík, annar norður í Fljótum og þriðji úti í Danmörku.

Stefnan er að skapa skemmtilegan og spennandi fréttavef fyrir svæðið sem verður notaður sem allra víðast. Vefritið hefur sérstakan áhuga á atvinnulífi, framkvæmdum og framförum á Ströndum, eflingu byggðar og skemmtilegu mannlífi í héraðinu. Öllu því sem gerir það sérstakt og jákvætt að lifa og starfa á Ströndum eða heimsækja héraðið sem ferðamaður.