Það var fallegt veður á laugardagsmorgun í Steingrímsfirði. Frostgufan úr sjónum reis á móti sólinni og snævi þakið landið baðaði sig í sólskininu. Væntanlega hefur flestum þótt gott að fá einn góðviðrisdag eftir rosann undanfarið, þótt frostið væri kringum tólf gráðurnar og sólin næði lítt að verma kalda kinn. Myndir af veðrinu undanfarna daga fylgja hér með.
Rýkur af sjónum í kuldanum – ljósm. Guðbrandur Sverrisson
Bassastaðir í blíðunni í gær – ljósm. Guðbrandur Sverrisson
Veðrabrigði á Ennishálsi fyrr í mánuðinum – ljósm. Guðmundur Fylkisson
Við Hrófá – ljósm. Jón Jónsson
Í Skeljavík við Steingrímsfjörð – ljósm. Jón Jónsson
Vegagerð í Skeljavíkurlandi – ljósm. Jón Jónsson
Heiðarbær í Tungusveit – ljósm. Jón Jónsson