25/04/2024

Hólmadrangshlaupið haldið 15. júní

Hólmadrangshlaupið verður haldið fimmtudaginn 15. júní á Hólmavík. Hlaupið hefst kl. 18 og verður hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík. Hægt er að velja um þrjár vegalengdir: 3 km, 5 km og 10 km. Allir þátttakendur í hlaupinu fá verðlaunapening fyrir þátttökuna frá Hólmadrangi á Hólmavík sem er styrktaraðili hlaupsins. Skráning fer fram á staðnum, en það er Héraðssamband Strandamanna sem hefur umsjón með viðburðinum.