29/03/2024

Umhverfisumbætur við Hólmavíkurkirkju

Sóknarnefnd Hólmavíkurkirkju ætlar að standa fyrir umhverfisumbótum við kirkjuna á föstudaginn kemur, 18. júní, kl. 17:00. Óskað er eftir sjálfboðaliðum til að taka þátt í verkefninu og eru þeir sem eru til í tuskið beðnir að mæta með áhöld til umbóta, góða skapið, vopn og verjur. Hreinsa þarf gróður, m.a. við gangstéttarhellur við kirkjuna, fjarlægja lúpínu sem er orðin nærgöngul og fleira. Hressing verður í boði fyrir þá sem mæta á staðinn.