19/04/2024

Sviðaveisla í Sævangi 25. október

645-svidav2

Það verður mikið um dýrðir í Sævangi fyrsta vetrardag, laugardaginn 25. október, en þá verður haldin vegleg sviðaveisla á Sauðfjársetrinu. Fullt hús hefur verið síðustu tvö ár á slíkum veislum hjá Sauðfjársetrinu og nokkur hefð komin á skemmtunina. Á boðstólum verða ný heit svið, einnig köld svið reykt og söltuð, sviðasulta og sviðalappir með tilheyrandi meðlæti. Í eftirmat verður blóðgrautur, ábrystir og rabarbaragrautur, þannig að allir ættu að koma heim saddir og sælir. Skemmtiatriði verða á meðan á borðhaldi stendur, meðal annars verður leikritið Smal heimsfrumsýnt, en heyrst hefur að þar sé um að ræða einskonar námskeið í árangursríkri smalamennsku í túlkun Leikfélags Hólmavíkur. Ræðumaður kvöldsins verður hinn sérdeilis jákvæði sveitarstjóri Strandabyggðar, Andrea Kristín Jónsdóttir.

Veislustjóri á sviðaveislunni er hinn síkáti Miðhúsabóndi Viðar Guðmundsson og má þar með búast við að söngur og sprell verði einnig drjúgur hluti af skemmtuninni. Þá verður spilað bingó undir borðum, til ánægju, gleði og yndisauka öllum sem viðstaddir eru. Það er Sauðfjársetur á Ströndum sem stendur fyrir sviðaveislunni, en húsið opnar kl. 19:00 laugardaginn 25. október. Borðhald hefst kl. 20:00. Aðgangur að skemmtuninni kostar krónur 4.500.- og hefur ekkert hækkað síðan í fyrra. Miðapantanir eru hjá Ester Sigfúsdóttur framkvæmdastjóra Sauðfjársetursins í síma 693-3474.