02/05/2024

Sundmót UDN og HSS á þriðjudag

Sameiginlegt sundmót UDN og HSS verður haldið í Grettislaug á Reykhólum þriðjudaginn 18. október nk. Mótið hefst kl. 17:00 og eru allir boðnir hjartanlega velkomnir. Þeta er tilvalið tækifæri fyrir börn og fullorðna á Ströndum til að sýna hvað í þeim býr, en sundkennsla hefur verið í gangi í nokkrum grunnskólanna á starfssvæði HSS undanfarnar vikur. Menn ættu því að vera í góðu formi. Umf. Afturelding í Reykhólahreppi verður með pylsur og svala til sölu og því er um að gera að smella sér yfir veginn um Arnkötludal og eiga góðan dag á Reykhólum. Skráning fer fram í síma 690-3825 (Herdís).

Greinarnar á mótinu eru eftirfarandi:

8 ára og yngri  – 25 m bringusund og 25 skriðsund  
9-10 ára – 25 m bringusund,  25 m baksund og 25 m skriðsund  
11-12 ára  – 50 m bringusund, 25 m baksund, 50 m skriðsund og 25 m flugsund  
13-14 ára – 50 m bringusund, 50 m baksund, 100 m bringusund, 50 m skriðsund og 25 m flugsund  
15-16 ára – 50 m bringusund, 50 m baksund, 200 m bringusund, 50 m skriðsund og 25 m flugsund  
17 ára og eldri – 50 m bringusund, 50 m baksund, 200 m bringusund og 50 m skriðsund  
100 m fjórsund (4x25m) flugsund, baksund, bringusund og skriðsund
4×50 m boðsund