30/04/2024

Styrkir Orkubús Vestfjarða til samfélagsverkefna


Stjórn Orkubús Vestfjarða hefur ákveðið að veita styrki til samfélagsverkefna á Vestfjörðum. Umsóknir um styrkina þurfa að berast Orkubúi Vestfjarða fyrir 1. desember n.k. og er stefnt að því að þeim verði úthlutað í desember. Umsókn um styrk má senda í pósti til Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi 1, 400 Ísafirði, merkt „Styrkur“ eða með tölvupósti til orkubússtjóra á netfangið kh@ov.is.