28/04/2024

Skiladagur í Hamingjulagakeppni nálgast

Nú er síðasti skiladagur fyrir dægurlagakeppni Menningarmálanefndar Strandabyggðar að nálgast, en keppnin er haldin í tilefni af bæjarhátíðinni Hamingjudagar á Hólmavík. Þetta er í þriðja skiptið sem hátíðin og lagakeppnin er haldin og eru allir sem sett geta saman lag og texta hvattir til að taka þátt. Skila þarf lögum í síðasta lagi þann 16. maí og úrslitakeppni verður síðan haldin í félagsheimilinu á Hólmavík 19. maí þar sem lögin eru sungin við undirspil af geisladiski og munu áhorfendur velja sigurlagið. Lagið má ekki hafa heyrst opinberlega áður og ekki er verra að textinn fjalli að einhverju leyti um Hólmavík eða Hamingjudaga.

Skila þarf lögum á geisladiski til Menningarmálanefndar á skrifstofu Strandabyggðar fyrir 16. maí 2007, merkt Hamingjudagar á Hólmavík – Lagasamkeppni 2007, Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík. Allar nánari upplýsingar um reglur og fyrirkomulag keppninnar má finna á hér eða með því að hafa samband við framkvæmdastjóra hátíðarinnar, Bjarna Ómar Haraldsson í síma 892-4666. Einnig má senda póst á póstfangið hamingjudagar@holmavik.is.