23/04/2024

Samningur eldri borgara og Strandabyggðar

Í síðustu viku var hátíðleg stund á skrifstofu Strandabyggðar, en þá var skrifað undir styrktarsamning milli Félags eldri borgara í Strandasýslu og sveitarfélagsins Strandabyggðar. Meginmarkmið samningsins sem er til þriggja ára, er að styðja við þá mikilvægu og öflugu starfsemi sem fer fram allt árið um kring á vegum félagsins. Formaður Félags eldri borgara í Strandasýslu, Maríus Kárason, skrifaði undir samninginn fyrir hönd félagsins og Ingibjörg Valgeirsdóttir sveitarstjóri skrifaði undir fyrir hönd Strandabyggðar. Með þeim á myndinni er Arnar S. Jónsson tómstundafulltrúi Strandabyggðar sem undirbjó samninginn.

Allir íbúar 60 ára og eldri geta gengið í Félag eldri borgara í Strandasýslu og tekið þátt í því frábæra starfi sem þar fer fram.