16/05/2024

Samkeppni um merki fyrir félagsþjónustu

Óskað hefur verið eftir tillögum að merki fyrir félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps. Merkið þarf að vera tilbúið til notkunar á tölvutæku formi. Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps er sameiginleg félagsþjónusta sveitarfélaganna, Árneshrepps, Kaldrananeshrepps, Strandabyggðar og Reykhólahrepps. Félagsþjónustan sinnir þjónustu á sviði barnaverndar, félagslegrar ráðgjafar, fjárhagsaðstoðar, málefni fatlaðs fólks, félagslegrar heimaþjónustu og málefni aldraðra. Einkennisorð félagsþjónustunnar eru mannvirðing, fordómaleysi og trúnaður.

Tillögurnar óskast sendar inn á skrifstofu Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík ekki seinna en 18.september 2011, merktar „lógó". Félagsmálastjóri tekur við tillögunum. Nánari upplýsingar veitir Hildur Jakobína Gísladóttir félagsmálastjóri í síma 842-2511 eða í gegnum netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is.

Í verðlaun eru heiðurinn á höfundaverki kennimerkisins auk 50.000.- króna.