24/04/2024

Öskudagur á Drangsnesi

Draugar fortíðarinnarKrakkar á Drangsnesi notuðu tækifærið sem öskudagurinn býður upp á og sungu fyrir fólk á hinum ýmsu vinnustöðum. Að sjálfsögðu væntu þau sér einhvers í staðinn eins og aðrar stórstjörnur sem troða upp.

Síðan var öskudagsball í Grunnskólanum á Drangsnesi að venju eftir hádegið.

Börnin slógu ekki hendinni á móti heitu kakó og kexi í fiskvinnslunni Drangi.

Í verslun KSH á Drangsnesi var sungið fullum hálsi fyrir smá nammi í poka.

Það var ekki laust við að færi um oddvitann þegar draugar fortíðar virtust vera að gera innrás á hreppsskrifstofuna á Drangsnesi. Sem betur fer voru þetta engir uppvakningar heldur glaðbeittir söngvarar í mikilli stemmingu. – ljósm. Jenný