Árleg Ólafsdalshátíð verður haldin sunnudaginn 11. ágúst og reyndar verða líka viðburðir á dagskrá hátíðarinnar daginn áður. Margt verður til gamans gert á Ólafsdalshátíðinni og er ókeypis aðgangur og skemmtiatriði. Dagskráin er birt hér að neðan. Nánari upplýsingar má fá á www.olafsdalur.is.
10. ágúst Undanfari hátíðar – „upphitun“
10:00 Gönguferð: hringur um Ólafsdal
Gengið upp úr skálinni ofan við skólahúsið, farinn hringur um dalinn á fjallsbrúnum og niður Taglið gegnt bænum (erfiðleikastig – tveir skór).
14:00 Námskeið: Vinnsla ullar og tóvinna
Námskeið fyrir börn og ungmenni í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands.
11. ágúst Ólafsdalshátíð
11:00 Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst. Fjöldi góðra vinninga
Miðaverð kr. 500
12:00-17:00 Ólafsdalsmarkaðir og sýningar:
Lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti – ostar – Erpsstaðaís – kræklingur – ber og margt fleira. Fjölbreyttur handverksmarkaður.
- Ólafsdalsskólinn 1880-1907: fastasýning á 1. hæð skólahússins
- Guðlaug og konurnar í Ólafsdal: ný sérsýning á 2. hæð skólahússins. Styrkt af Menningarráði Vesturlands
- Matur- og matararhefðir við Breiðafjörð og á Ströndum: kynning á 2. hæð skólahússins í samvinnu við Þjóðfræðisetrið á Hólmavík.
13:00 HÁTÍÐARDAGSKRÁ
- Ávarp: Fulltrúi stjórnar Ólafsdalsfélagsins
- Ræða: Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra
- Tónlist: Sigríður Thorlacius söngkona og Guðmundur Óskar Guðmundsson bassaleikari
- Erindi: Kolfinna Jóhannesdóttir, skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar. Framhaldsnám í heimabyggð
- Erindi: Halla Steinólfsdóttir, bóndi og varaformaður Ólafsdalsfélagsins. Landbúnaður 2013. Eitthvað nýtt
- Tónlist: Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar Guðmundsson.
- Kynnir: Jóhannes Kristjánsson, skemmtikraftur og eftirherma
15:00 Leikhópurinn Lotta sýnir Gilitrutt
Erindi á Langaloftinu á 2. hæð skólahússins:
- 15:00 Sýningin „Guðlaug og konurnar í Ólafsdal“: Sigríður Jörundsdóttir, sagnfræðingur
- 16:00 Torfi, verkfærin og vinnuhestarnir. Bjarni Guðmundsson, prófessor
16:30 Dregið í Ólafsdalshappdrættinu
Hestar teymdir undir börnum (frítt). Einnig verður boðið uppá ½ klst reiðtúra gegn gjaldi. Veitingar á sanngjörnu verði.