02/05/2024

Nýr menningarvefur og styrkir til menningarverkefna

Í morgun var opnaður nýr vefur Menningarráðs Vestfjarða á slóðinni www.vestfirskmenning.is Á vefnum eru margvíslegar upplýsingar um menningarlíf á Vestfjörðum og starfsemi Menningarráðsins, fréttir af atburðum og tíðindi úr menningarlífinu, tenglar og upplýsingar um styrki Menningarráðsins ásamt vefformi með umsóknareyðublaði. Á sama tíma var opnað fyrir styrkumsóknir vegna menningarverkefna til Menningarráðsins.

 Það voru nemendur í 4. bekk Grunnskólans á Hólmavík sem aðstoðuðu Jón Jónsson menningarfulltrúa Vestfjarða við að opna vefinn á Héraðsbókasafni Strandasýslu í morgun, eftir að hafa hlýtt á pistil um nýsköpun og gildi einstaklingsframtaksins í menningarstarfi. Lagt var út frá því hvað hefði breyst til hins betra á Hólmavík og Ströndum frá því nemendurnir sjálfir komu í heiminn fyrir 9 árum. Í framhaldi af því ræddi hópurinn á hvaða sviðum menningar- og félagslífið gæti verið öflugra, hvar sóknarfærin lægju og hvernig nemendurnir sjálfir gætu breytt heiminum til hins betra þegar fram líða stundir ef aðrir verða ekki fyrri til. Að loknum umræðum var svo vefurinn opnaður við mikinn fögnuð.

Með opnun vefjarins er einnig opnað fyrir styrkumsóknir til Menningarráðsins vegna menningarstarfs og menningarverkefna á árinu 2007. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 2. nóvember og eru eyðublöð og úthlutunarreglur aðgengilegar á vefnum.

Vefurinn vestfirskmenning.is er unninn í vefumsjónarkerfinu Snerpil sem veffyrirtækið Snerpa á Ísafirði á veg og vanda að. Útlitshönnun var í höndum Ágústs Atlasonar hjá Snerpu.

4. bekkur

Hugmyndavinna um hvernig sé hægt að efla mannlíf og menningu næstu 9 ár og hvað hefur breyst síðustu 9 ár. Fjórði bekkur, Victor Örn Victorsson skólastjóri og Hildur Guðjónsdóttir kennari bekksins. Hópurinn komst að þeirri niðurstöðu að þótt margt gæti breyst á 9 árum þá væri líka sumt sem breyttist ekki og Victor hefði verið farinn að vinna í skólanum löngu áður en þau fæddust.

Jón Jónsson útskýrir hvað það er sem menningarfulltrúar vinna eiginlega við.

frettamyndir/2007/580-vestfirskmenning5.jpg

Eyrún Björt Halldórsdóttir ýtir á rétta hnappinn og opnar vefinn við velæfð fagnaðarlæti bekkjarfélaganna.

frettamyndir/2007/580-vestfirskmenning2.jpg

Fjórði bekkur ásamt Jóni Jónssyni menningarfulltrúa og Arnari S. Jónssyni formanni Menningarmálanefndar Strandabyggðar og fulltrúa í stjórn Menningarráðs Vestfjarða, nýbúinn að opna nýja menningarvefinn og breyta þannig heiminum pínulítið.

Ljósm. Ester Sigfúsdóttir