27/04/2024

Ný staða tómstundafulltrúa í Strandabyggð

Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur ákveðið að auglýsa eftir umsóknum í nýtt starf tómstundafulltrúa í sveitarfélaginu. Um er að ræða 75-100% starf eftir samkomulagi. Í fréttatilkynningu kemur fram að tómstundafulltrúi mun sinna fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum sem tengjast menningarmálum, tómstunda- og íþróttastarfi í sveitarfélaginu og hafa yfirumsjón með þeim málaflokkum. Mikilvægur hluti af verksviði tómstundafulltrúa er að stýra og starfa við félagsmiðstöðina OZON á Hólmavík. Umsóknarfrestur um starfið er til 10. desember og skal skila umsóknum til skrifstofu Strandabyggðar eða í netfangið holmavik@holmavik.is.  

Hugmynda-, undirbúnings- og skipulagsvinna verður viðamikill þáttur í starfi tómstundafulltrúa. Hann á að vinna að því að efla félagslíf og tómstundastarf ólíkra aldurshópa í sveitarfélaginu og annast samskipti við félagasamtök og stofnanir. Tómstundafulltrúi mun einnig sinna viðburðastjórnun við atburði og uppákomur á vegum sveitarfélagsins eftir því sem við á og taka þátt í stýrihóp sveitarfélagsins um forvarnir. Þá er tómstundafulltrúa ætlað að vinna að fjármögnun verkefna og undirbúa skapandi starf vinnuskóla og sjálfboðaliðasamtaka í sveitarfélaginu.

Hæfnis- og menntunarkröfur eru þessar:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, forystu- og skipulagshæfileikar
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Frumkvæði og hugmyndaauðgi