![](wp-content/uploads/frettamyndir/2005/150-kjorbud.jpg)
Lækjargarður ehf mun einnig hýsa skrifstofu Ráðanautaþjónustu Húnaþings og Stranda og í skoðun er að Sparisjóður Húnaþings og Stranda flytji aðstöðu og afgreiðslu sína þangað. Sigrún og Heiðar segjast vera með eitt og annað á prjónunum sem framtíðin mun leiða í ljós, t.d. er hugmynd að opna tjaldstæði í vor undir kaupfélagsbrekkunni og hafa hreinlætisaðstöðu í verslunarhúsnæðinu.
![](wp-content/uploads/frettamyndir/2005/350-kjorbud1.jpg)
Fyrsti viðskiptavinurinn, Eyjólfur Vilhelmsson
Kjörbúðin verður í vetur opin alla virka daga frá kl. 10-12 og 13-18, sem verður svo endurskoðað í vor með auknum umsvifum. Að sögn Sigrúnar og Heiðars verður vöruúrvalið í samræmi við hefðbundna kjörbúð og telja þau sig geta verið samkeppnisfær með verðlag sé miðað við dreifbýlisverslun. Almennar vörur koma einu sinni í viku, en nýtt brauð kemur tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum. Sömu daga kemur mjólkin. Sigrún og Heiðar keyptu gamla Kaupfélagsstjórahúsið árið 2002 og líkar vel að búa á Borðeyri.
![](wp-content/uploads/frettamyndir/2005/350-kjorbud2.jpg)
Kaffihorn í búðinni
![](wp-content/uploads/frettamyndir/2005/580-kjorbud.jpg)
Heiðar og Sigrún – ljósm. Sveinn Karlsson