Það var líf og fjör við opnunina á Stefnumóti á Ströndum í gær og á hátíðardagskránni. Myndir segja oft meira en mörg orð og hér birtum við því úrval af myndum frá sérlegum ljósmyndara verkefnisins, Ágústi G. Atlasyni á Ísafirði. Sýningin sjálf verður opin til 15. september frá 13-17 alla daga og í anddyri Félagsheimilisins gefur einnig að líta ljósmyndasýninguna NV Vestfirðir eftir Ágúst. Ingibjörg Valgeirsdóttir og fyrirtækið Assa – þekking & þjálfun sjá um framkvæmdastjórn við verkefnið, en Þróunarsetrið á Hólmavík og Arnkatla 2008 standa fyrir Stefnumótinu.
Stefnumót á Ströndum – ljósm. Ágúst G. Atlason