02/05/2024

Aðalfundur FMSV verður haldinn þann 17. apríl

Ljósm.: www.hotelnupur.isAðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða verður haldinn á Hótel Núpi í Dýrafirði
laugardaginn 17. apríl n.k. kl. 9:00. Það stefnir í mikla dagskrá í tengslum við
aðalfundinn. Á föstudagskvöldinu verður stefnumótunarskýrslan kynnt en verið er
að leggja lokahönd á hana um þessar mundir. Vel yfir 100 manns komu að vinnu við
hana á fundum víðsvegar um Vestfirði. Eftir aðalfundinn á laugardagsmorgni hefst
síðan heilmikil ráðstefna undir yfirskriftinni Umhverfisvottaðir Vestfirðir. Þar
halda erindi helstu sérfræðingar landsins um þennan málaflokk og ræða hann út
frá öllum sviðum. Umhverfisráðherra hefur boðað komu sína á fundinn. 

Vonast er
til þess að þessi ráðstefna verði til þess að í framhaldinu muni Vestfirðingar
ræða í fullri alvöru kosti þess að taka upp umhverfisvottun fyrir svæðið.
Bundnar eru vonir til þess að Fjórðungssamband Vestfjarða taki við boltanum og
stýri framhaldsvinnunni í góðri samvinnu við önnur sveitarfélög, fyrirtæki,
stofnanir og íbúa í fjórðungnum.

Dagskrá aðalfundarins og ráðstefnunnar
verður kynnt ítarlega innan tíðar.


Hótel Núpur í Dýrafirði.
Ljósm.: www.hotelnupur.is