Það var óvenju mikið um dýrðir á Góugleði sem haldin var á Hólmavík um helgina. Mikill fjöldi gesta var á staðnum, skemmtiatriðin afbragð og maturinn frábær. Karlar á staðnum sjá um skemmtiatriðin sem eru ávallt frumsamin og fjalla um menn og málefni á svæðinu í spéspegli. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar spilaði síðan fyrir dansi og var gríðarmikið fjör. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is var á staðnum og tók myndir af skemmtiatriðum, en lagði að venju myndavélina til hliðar þegar líða tók á kvöld. Strandamenn kunna að skemmta sér og gleðskapurinn fór friðsamlega og áfallalaust fram.
Góugleði á Hólmavík – ljósm. Jón Jónsson